Settu AI-aðstoðarmann í vinnu hjá teyminu/
OpenClaw er AI-aðstoðarmaður sem allt teymið getur talað við, í spjallinu sem þið notið nú þegar. Ég hjálpa fólki og fyrirtækjum að finna út hvað hann á að gera fyrir þau og hvar hann leysir verkið betur en AI-verkfærin sem þau nota í dag.
Þetta er ekki námskeið í uppsetningu. Við byrjum á verkefni sem þú vilt leysa, annaðhvort í einkatíma eða með teyminu þínu.
- Einkatímar
- eða með öllu teyminu
- Þitt verkefni
- er upphafspunkturinn
Á íslensku eða ensku · Verð eftir umfangi · Svona vinnum við
Anna@aðstoðarmaður verðlistinn á málningarsíðunni er frá því í fyrra. Geturðu skipt honum út?✓✓
Ég fann nýja listann í vörumöppunni og útbjó breytinguna sem drög. Jón, þú þarft að samþykkja hana.
JónSamþykkt. Bættu þessu í handbókina svo við munum eftir þessu í janúar á hverju ári.✓✓
Það sem OpenClaw gerir en önnur AI-verkfæri ekki/
Flest AI-verkfæri eru gerð fyrir eina manneskju við einn skjá. Forritunaraðstoð vinnur í skipanalínu forritarans og spjallaðstoð býr í vafraflipa hjá einum notanda. Hvort tveggja virkar vel þar. OpenClaw er gert fyrir vinnuna sem fer fram á milli fólks.
Hann vinnur þar sem teymið talar saman
Slack, Microsoft Teams, Telegram, Discord, WhatsApp, Signal og fleiri. Enginn þarf að setja upp nýtt forrit eða læra á skipanalínu. Þú nefnir aðstoðarmanninn í rásinni og hann svarar þar.
Allir tala við sama aðstoðarmanninn
Fleiri en einn geta falið honum verk, fylgst með því sem hann gerir og tekið við þar sem samstarfsfélagi hætti. Þið ákveðið hver má biðja um hvað og hvaða breytingar manneskja þarf að samþykkja.
Hann vinnur þótt enginn sitji við tölvuna
Hann keyrir á ykkar eigin þjóni, ekki á fartölvu einhvers í teyminu. Tímasett verk skila sér í rásina, og lagfæring sem er skráð í sameiginlegu handbókina nýtist næsta manni sem spyr.
- Verkið fer í gangTímasett verk hefst á þjóninum ykkar, án þess að nokkur opni neitt.
- Það sækir gögninÞrjár af fjórum heimildum uppfærðust. Skjal birgjans hefur ekki breyst síðan á föstudag, svo aðstoðarmaðurinn segir frá því í stað þess að giska.
- Skilaboðin berast í rás teymisinsStutt, með tölunum og því eina sem þarf að skoða.
- Einhver í teyminu svararaf hverju er lína 3 tóm? og aðstoðarmaðurinn kannar málið. Ef verklagið hefur breyst uppfærir hann leiðbeiningarnar.
OpenClaw er ekki besta verkfærið í allt. Fyrir einn forritara sem skrifar kóða hentar forritunaraðstoð yfirleitt betur. Hluti af vinnunni er að ákveða hvaða verk eiga heima hvar.
Þar sem þetta hefur virkað betur/
Dæmin eru úr kerfum sem ég rek á hverjum degi, fyrir markaðsteymi hjá fyrirtæki sem selur iðnaðarvörur og fyrir mín eigin verkefni.
Sameiginlegir aðstoðarmenn fyrir markaðsteymi
Samstarfsfólk biður um lagfæringar á vefnum, myndir og regluleg verk í spjalli teymisins. Með verkfærum fyrir einn notanda lendir slík vinna hjá þeim sem er með verkfærið opið. Það sem skipti mestu var handbók sem bæði teymið og aðstoðarmaðurinn lesa, aðskilin frá minni aðstoðarmannsins.
Breytingar á netverslun sem bíða samþykkis
Aðstoðarmenn undirbúa breytingar á vörum, efni og leitarvélabestun í tveimur netverslunum sem drög. Manneskja samþykkir það sem fer í birtingu. Aðstoðarmaðurinn vinnur handavinnuna án þess að fá lyklana að versluninni.
Vöktun sem lætur vita í rásinni
Tímasett eftirlit fylgist með vefjum, þjónustum og afritum og lætur aðeins vita þegar eitthvað þarf að skoða. Þegar lagfæring hefur verið prófuð er verklagið uppfært, svo sama bilun tekur styttri tíma næst.
Skoðaðu verkefnin á bak við dæmin →
Þetta eru mín eigin dæmi, ekki samanburðarmæling. Verkfærin ykkar og teymið ráða því hvað virkar hjá ykkur.
Einkatímar eða vinna með teyminu/
Einkatímar
Fyrir þá sem vilja að aðstoðarmaður vinni raunveruleg verk fyrir sig. Við veljum eitt verkefni, komum því í gang og förum yfir hvernig þú athugar útkomuna.
Teymi og fyrirtæki
Fyrir hópa sem vilja leysa ákveðið vandamál. Við kortleggjum hver þarf hvað frá aðstoðarmanninum, setjum upp rásir og samþykktir og skrifum fyrsta verklagið saman.
Uppsetningin er minnsti hlutinn. Ef OpenClaw er ekki komið í gang hjá ykkur sjáum við um það í leiðinni, en tíminn fer í vinnuna sjálfa: hvað aðstoðarmaðurinn á að gera, hver má biðja hann um það og hvernig þið vitið að verkið hafi tekist.
Hæ, ég heiti Ágúst/

Ég nota AI-aðstoðarmenn við vefvinnu, skjalaleit, þróun innri verkfæra og rekstur eigin verkefna. Vinnustofan byggist á þeirri daglegu vinnu.
Ég sýni þér leiðbeiningarnar og skills sem ég nota, og hvernig ég athuga hvort verkið sé í raun tilbúið þegar aðstoðarmaðurinn segist vera búinn. Handbókin skiptir máli vegna þess að ég vil ekki leysa sama vandamálið frá grunni í næstu viku.
Áður en þú hefur samband/
Þurfum við að vera búin að setja upp OpenClaw?
Nei. Ef það er ekki komið í gang setjum við það upp í leiðinni. Vinnustofan snýst um það sem aðstoðarmaðurinn gerir, ekki uppsetninguna.
Hvaða spjallforrit virka?
Slack, Microsoft Teams, Telegram, Discord, WhatsApp, Signal, Matrix og fleiri. Við byrjum á því sem teymið notar nú þegar.
Verða gögnin okkar eftir hjá okkur?
OpenClaw keyrir á þjóni sem þið stjórnið og þar eru leiðbeiningar og skrár geymdar. Gervigreindarlíkanið og spjallþjónustan vinna samt úr því sem þið sendið þeim. Við förum yfir þau mörk áður en nokkuð viðkvæmt er tengt.
Getur heilt teymi deilt einum aðstoðarmanni?
Já, og þar nýtist OpenClaw best. Þið þurfið að ákveða hver má biðja um hvað. Það dugar ekki að gefa aðstoðarmönnum mismunandi nöfn til að halda einkagögnum aðskildum, svo við setjum aðgangsstýringu rétt upp.
Af hverju ekki bara að lesa leiðbeiningarnar?
Leiðbeiningar OpenClaw eru ókeypis og góðar. Ég hjálpa við það sem þær geta ekki sagt þér: hvaða verk í þínum rekstri henta, og hvernig þú veist að þeim sé lokið.
Segðu mér hvað þú vilt leysa/
Sendu mér nokkrar línur um verkefnið, teymið og verkfærin sem þið notið. Verðið fer eftir því hvað þið þurfið og umfangi verksins, svo við ákveðum það eftir fyrsta samtal.
Hafðu samband →