Punktar/
Stuttir punktar um það sem ég er að vinna að núna. Hér má hugsa upphátt.
- Tókaskatturinn Það kostar meira að tala við gervigreindarlíkan á íslensku en að segja það sama á ensku. Ég mældi hversu miklu munar: um 1,5 sinnum fleiri tókar.
- Humla og íslensk leit Vefverslanirnar kemi.is og poulsen.is nota nú Humlu, leitarvél sem er smíðuð utan um íslensku. Hvað breytist fyrir þá sem leita, og hvers vegna tölfræðin skiptir líka máli.
- MCP og WebMCP Hvort tveggja gefur AI-aðstoðarmönnum verkfæri til að vinna með. MCP tengir aðstoðarmann við þjón sem þú rekur sjálfur; með WebMCP býður vefsíðan sjálf fram verkfæri fyrir aðstoðarmanninn í vafranum.
Lengri og fullunnar greinar eru á Workbench (á ensku).